
← Fotbolti.net2 sep
Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál
Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál
Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir 17. umferð Bestu deildar kvenna.
Toppliðin tvö hikstuðu bæði, aftur. FH hefur núna fengið tvö tækifæri til að komast á toppinn en ekki nýtt sér þau. Á hinum enda töflunnar er spennan gríðarleg.
Þá var rætt um stórt kærumál sem getur haft mikil áhrif á framhaldið í Bestu deildinni.
Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.