Gullkastið

← Gullkastið12 aug · 51 min

Gullkastið – Araujo mættur til æfinga

Gullkastið – Araujo mættur til æfinga12 aug51 min

Liverpool bætti Araujo miðverði frá Barceolna við leikmannahópinn í vikunni og kom það nokkuð óvænt upp. Hann hefur átt erfitt uppdráttar eftir að Hansi Flick tók við liðinu en var lykilmaður hjá Xavi og hefur verið í fyrirliðahópi Barcelona. Þetta er strákur frá Úruvgæ sem kom til Barcelona árið 2018. Spáum í honum og slúðri af leikmannamarkaðnum.

Liverpool spilaði æfingaleik um helgina sem var mjög svipaður leikjum gegn Leeds í Bandaríkjunum, gríðarlega kaflaskiptur og mikið hrun í leik liðsins þegar lykilmenn fóru að fara af velli. Iraola var ekki sáttur við hlaupagetu hópsins eftir leik sem klárlega er verið að vinna í á æfingasvæðinu og vonandi leikmannamarkaðnum líka.

Héldum áfram með Power Rank á deildina, Ögurverk liðið o.fl.

Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf.

Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel

Stjórnandi: Einar Matthías

Viðmælendur: SSteinn og Maggi

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf