Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

← Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp12 jun · 1 u 04 min

Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu

Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu12 jun1 u 04 min

Í nýjasta þætti af Menn eins og við fara þeir Baldur Rafn Gylfason og Einar Bárðarson um víðan völl eins og þeim einum er lagið.

Báðir misstu þeir af tónleikum Bubba um síðustu helgi og glíma enn við talsvert FOMO vegna þess. Á meðan situr Baldur fastur í framkvæmdum heima hjá sér þar sem garðverktakarnir hafa í raun tekið sumarið hans í gíslingu og hann er farinn að sýna öllum einkennum Stokkhólmsheilkennis gagnvart mönnum með gröfur og hellulagnir.

Einar kynnir svo hina margrómuðu F350 reglu um heimilisfjárfestingar eftir að hafa eytt heilu kvöldi í að rannsaka kælibox af slíkri ástríðu að hann sannfærðist næstum um að hann þyrfti eitt – áður en hann komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði nákvæmlega ekkert við það að gera.

Svo segir Baldur sanna sögu af manni sem mætti allsber á Range Rover í lúguna hjá Aktu Taktu á Sæbrautinni til að panta sér ís. Afgreiðslumaðurinn var ekki undirbúinn fyrir þá upplifun og sagan verður vart endursögð án þess að hlæja.

Sumarið, grasið, græjurnar, Bubbi, framkvæmdir, kælibox og allsberir menn í lúgum. Þetta er allt saman í nýjasta þætti af Menn eins og við.

Aðalbakhjarlar Menn eins og við

http://bkhonnun.is

http://hertzlangtimaleiga.is

http://kolski.is

http://bpro.is

Samstarfsaðilar Menn eins og við

http://biobu.is