Popparasögur

← Popparasögur7 jul · 55 min

#19 | Bræðslan 2026 og endurkoma goðsagnakenndra hljómsveita

#19 | Bræðslan 2026 og endurkoma goðsagnakenndra hljómsveita7 jul55 min

Tónlistarhátíðin Bræðslan hefur verið haldin á Borgarfirði eystri síðan árið 2005 og fagnaði 20 ára afmæli á síðasta ári. Í dag er þetta orðin ein stærsta tónlistarhátíð landsins og jafnframt sú sem er erfiðast að fá miða á því aðeins eru tæplega eitt þúsund slíkir seldir á hverja hátíð.

Á hátíðinni í ár, sem verður haldin laugardaginn 25. júlí, munu koma fram Ásgeir, Raven, Skandall, Greifarnir, Land og synir og Sólstrandargæjarnir. Auk þess verða margs konar viðburðir í bænum í vikunni fyrir Bræðsluna.

Í þessum þætti verður rætt við Magna Ásgeirsson, heimamann og einn af stofnendum og skipuleggjendum Bræðslunnar, um hvernig hátíðin varð til, hvernig hún hefur þróast í gegnum árin og hvernig hún hefur haldið í sinn einstaka anda þrátt fyrir sívaxandi vinsældir.

Við förum yfir undirbúninginn fyrir hátíðina í ár, hvernig dagskráin verður til og hvað þarf að gerast áður en fyrstu tónarnir hljóma í gömlu bræðslunni.

Við rifjum upp eftirminnileg tónlistaratriði, ræðum áhrif Bræðslunnar á samfélagið á Borgarfirði eystri, lítum á dagskrá ársins og veltum fyrir okkur framtíð hátíðarinnar.

Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.