
← Seinni níu3 aug · 1 u 39 min
#123 - Rúrik tvívegis misst af rástíma með Figo
<p>Við fengum til okkar frábæran gest í <em>Seinni níu</em> þessa vikuna. Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason kom í heimsókn en hann hóf að leika golf fyrir rúmum þremur árum og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni.</p><p>Rúrik er með 8,7 í forgjöf og leikur aðallega golf í Madríd, þar sem hann er nú búsettur. Hann er í sama golfklúbbi og þekktir knattspyrnumenn á borð við Luís Figo og Raúl og hefur tvívegis fengið boð um að spila með þeim. Í bæði skiptin þurfti Rúrik hins vegar að afþakka en á inni hring með þessum goðsögnum.</p><p>Í þættinum, sem er sá lengsti frá upphafi <em>Seinni níu</em>, er komið víða við. Rúrik fer yfir helstu mistökin sem hann gerði þegar hann var að byrja í golfi og gefur byrjendum góð ráð í skemmtilegri kraftaröð. Draumahollið var sérstaklega huggulegt en þar kemur David Beckham við sögu. Rúrik segir meðal annars sprenghlægilega sögu af því þegar hann hitti Beckham á veitingastað.</p><p>Þetta er meiriháttar þáttur þar sem margt áhugavert ber á góma.</p>