
← Seinni níu24 aug · 1 u 17 min
#126 - Viggó er með 11-tré í pokanum til að stöðva forgjafarhækkun
<p>Við fengum hinn stórskemmtilega Viggó Harald Viggósson til okkar í Seinni níu. Viggó er góður kylfingur en ekki síst hefur hann verið frumkvöðull á sviði golfherma á Íslandi. Í þættinum ræðum við þá þróun sem hefur átt sér stað á því sviði. Viggó segir okkur frá því hvernig hann fór af stað með opnun golfhermastaðar og þeim mistökum sem hann gerði í upphafi.</p><p>Viggó er kominn með 11-tré í golfpokann sem hann notar til að sporna gegn þeirri forgjafarhækkun sem fylgir því að aldurinn færist yfir. Þetta er spennandi þróun sem hjálpar meðalkylfingum að slá lengra og beinna.</p><p>Við ræðum talsvert um Grafarholtsvöll, en það er þar sem Viggó féll fyrir íþróttinni og hann ber sterkar taugar til vallarins. Stórskemmtilegur þáttur þar sem draumahollið er auðvitað á sínum stað, auk þess sem við förum yfir þau skipti sem Viggó hefur farið holu í höggi.</p><p>Einna skemmtilegast var þó að heyra af tveimur stórum klúðrum sem Viggó gerði í keppnisgolfinu. Alltaf gaman að fara yfir ófarir annarra.</p>