Seinni níu

← Seinni níu6 jul · 1 u 04 min

#119 - Hrafnkell Freyr er með ólöglegan dræver

#119 - Hrafnkell Freyr er með ólöglegan dræver6 jul1 u 04 min

<p>Við fengum til okkar þekktasta málara landsins í Seinni níu. Hrafnkell Freyr Ágústsson, betur þekktur sem Keli í Dr. Football, mætti í þáttinn en hann byrjaði í golfi seint síðasta sumar. Eftir að hafa slegið gott golfhögg í mannskaðaveðri þá féll Keli algjörlega fyrir íþróttinni.</p><p>Hrafnkell er að bíða eftir að fá nýjan dræver frá Takomo en dræverinn sem hann keypti fyrr á þessu ári reyndist vera ólöglegur. Keli er félagi í Golfklúbbi Grindavíkur og hann leikur mikið golf á Suðurnesjum.</p><p>Það kom á daginn að Keli er mikilli aðdáandi okkar í Seinni níu og við fengum hann til að kraftraða sínum uppáhaldsþáttum af Seinni níu sem reyndist mjög áhugaverður listi. Sömuleiðis fengum við tvö draumaholl.</p><p>Frábær þáttur þar sem komið er víða við og auðvitað á léttu nótunum.</p>