
← Seinni níu17 aug · 1 u 16 min
#125 - Gauti þjálfar marga af bestu kylfingum landsins
<p>Við fengum til okkar Gauta Grétarsson í gott spjall á dögunum. Gauti er einn fremsti sjúkraþjálfari landsins og þjálfar marga af bestu kylfingum landsins. Gauti er þrautreyndur íþróttaþjálfari og þjálfaði handbolta á árum áður. Sú reynsla nýtist vel við þjálfun á líkamlegum og andlegum þætti í golfi.</p><p>Í þættinu ræðir Gauti við okkur hvernig hann undirbjó Íslandsmeistarann Dagbjart Sigurbrandsson fyrir Íslandsmótið í golfi með því að æfingum í vonskuveðri á Nesvellinum.</p><p>Gauti varð Íslandsmeistari eldri kylfinga á dögunum og hann ræðir við okkur um það hvernig hann byrjaði í golfi, að verða neðstur í sínu fyrsta Íslandsmóti og hversu mikið jákvæð hugsun getur hjálpað á golfvellinum.</p><p>Frábært spjall við einn fremsta þjálfara landsins!</p>