
← Kratinn12. Juni · 36 Min.
S236: Eldhúsdagsumræður, viðkvæmir hægrimenn og hækkað í ofnunum á Alþingi
<p>Þáttur vikunnar er seinna á ferðinni en vanalega vegna eldhúsdagsumræðunnar á Alþingi sl. miðvikudag. Ræðumenn Samfylkingarinnar, sem voru Jóhann Páll Jóhannsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, fóru þar yfir farinn veg á þessu þingári og ýmis afrek sem unnist hafa á vettvangi þingsins. </p><p>Þáttastjórnendur fóru yfir bestu og verstu frammistöðurnar. Þá sagði Ásta Guðrún sögu af krullhærðum Pírata í gjaldeyrishöftum ásamt því að fara yfir býsna góða tölfræði úr þingstörfunum. Arnar Þór fór yfir þekkta tækni til að flýta fyrir þinglokum, sem virðist hafa virkað vel hjá honum. Viðbrögð hægri snjókornanna við efnismiklum og upplýsandi Silfursþætti voru krufin til mergjar. Þórður Snær náði að ranta um hagstjórn og Þórhallur Valur lýsti andúð sinni á umræðu um Evrópusambandið. </p>