Popparasögur

← Popparasögur6. Okt. · 1 Std. 03 Min.

#33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)

#33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)6. Okt.1 Std. 03 Min.

Þá er komið að seinni hlutanum í spjallinu við Franz Gunnarsson, gítarleikara, tónleikahaldara og margt fleira, sem hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu áratugi, t.d. með hljómsveitum eins og Ensími, Dr. Spock og fleirum.

Í fyrri hlutanum fór Franz yfir byrjunina með In Memoriam, Quicksand Jesus og Dr. Spock. Í þessum seinni hluta segir Franz frá hljómsveitinni Ensími, hvernig hún byrjaði eftir að hljómsveitin Jet Black Joe hætti á sínum tíma, Kafbátamúsík, vinnunni með Steve Albini, tilraunum þeirra til að slá í gegn erlendis, 30 ára afmælinu og fleiru.

Hann talar einnig um það að blanda saman þessum tveimur ólíku hljómsveitum, Ensími og Dr. Spock, og því hvernig áfengi hefur haft áhrif á líf hans og tónlistarferil.

Seinni hluti viðtalsins við Franz Gunnarsson.

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon