Popparasögur

← Popparasögur6. Okt. · 46 Min.

#32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)

#32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)6. Okt.46 Min.

Franz Gunnarsson hefur komið víða við á sínum tónlistarferli, hvort sem það er sem gítarleikari, höfundur, sólólistamaður eða tónleikahaldari. Hann hefur verið í hljómsveitum eins og In Memoriam og Quicksand Jesus sem voru áberandi á tíunda áratug síðustu aldar en þekktastur er hann sennilega sem meðlimur bæði Ensími og Dr. Spock.

Í þessum fyrri hluta af tveimur talar Franz um Músíktilraunir, rokksenuna og hvernig hún var þegar hann var að stíga sín fyrstu skref, upphaf Dr. Spock og Ensími, þátttöku í Söngvakeppni Sjónvarpsins og síðast en ekki síst mjög áhugaverðar tilraunir til markaðssetningar sem vöktu athygli almennings, fréttafólks og lögreglunnar.

Þetta er fyrri hluti af spjallinu við Franz Gunnarsson.

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon