← Skattaspjallið2. Okt. · 22 Min.
#35 - Skattlaust ár komið til að vera?

Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur Skattaspjallsins að þessu sinni. Fyrir stuttu kom út ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun. Óli Björn víkur eðli málsins samkvæmt að skattheimtu og fyrirkomulagi hennar. Í viðtalinu er farið yfir það en Óli Björn setur fram nýjar hugmyndir á ýmsum sviðum skattkerfisins, svo sem hvernig hægt sé að koma á skattlausu ári og gefa þannig öllu ungu fólki tækifæri til að spara og koma sér rækilega af stað út í lífið. Sannarlega áhugaverð hugmynd. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is