Stjörnuspeki – Orkugreining

← Stjörnuspeki – Orkugreining7. Sept. · 45 Min.

107: Ef allir væru sama merkið / Dolly Parton

107: Ef allir væru sama merkið / Dolly Parton7. Sept.45 Min.

1. Hvernig væri heimurinn ef allir væru sama stjörnumerkið?Hvað myndi gerast ef það væru bara hrútar á jörðinni? Eða bara steingeitur, fiskar eða ljón? Það kemur fljótt í ljós hvers vegna við þurfum á öllum 12 merkjunum að halda – hvert þeirra hefur sitt hlutverk og saman mynda þau ákveðna lífskeðju.

2. Ljónið kann að tala – en kann það að hlusta?Ljónið hefur sterka þörf fyrir að tjá sig, segja frá og láta ljós sitt skína. En þegar tvö sterk ljón hittast getur komið upp ákveðið vandamál: Hver ætlar eiginlega að hlusta þegar báðir vilja segja söguna?

3. Dolly Parton – hvernig getur þessi kona verið Steingeit og Meyja?Sól í Steingeit, tungl í Meyju og rísandi Meyja hljómar kannski ekki eins og augljós uppskrift að glimmeri, risastórum hárkollum og showbusiness. En þegar líf Dolly Parton er skoðað betur kemur jarðarorkan ótrúlega skýrt í ljós: vinnusemi, skipulag, viðskiptavit, þúsundir laga og heilt viðskiptaveldi.

4. Af hverju sagði Dolly Parton NEI við Elvis Presley?Elvis Presley vildi syngja „I Will Always Love You“, en til þess hefði Dolly þurft að gefa eftir stóran hluta höfundarréttarins. Hún neitaði. Árum síðar tók Whitney Houston lagið og ákvörðun Dolly reyndist henni gríðarlega verðmæt. Stundum sést Steingeitin og Meyjan best þegar kemur að stóru ákvörðununum.

5. Stjörnumerkið þitt segir langt frá því alla söguna.Dolly Parton er frábært dæmi um hvers vegna ekki er nóg að spyrja: „Hvaða merki ertu?“ Þegar stjörnukortið hennar er skoðað í heild – pláneturnar, húsin og afstöðurnar – kemur miklu stærri mynd í ljós. Þar sjáum við bæði skemmtikraftinn, viðskiptakonuna og konuna sem hefur látið gríðarlega gott af sér leiða.