Popparasögur

← Popparasögur29 sep · 1 u 08 min

#31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár

#31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár29 sep1 u 08 min

Hljómsveitin Á móti sól fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og ætlar af því tilefni að halda stórtónleika í Háskólabíói í október. Hljómsveitin var stofnuð eins og margar aðrar á sínum tíma til þess að spila á sveitaböllum, búa til smá pening fyrir meðlimi og hafa gaman.

Fyrst um sinn var ruglast á hljómsveitinni og öðrum sólarböndum, þá sérstaklega SSSól. En í dag er hljómsveitin Á móti sól löngu orðin ein af þeim þekktari á landinu með fjöldann allan af vinsælum lögum og stóran aðdáendahóp um land allt.

Í þessum þætti segja þeir Heimir Eyvindarson, stofnmeðlimur og einn aðallagahöfundur sveitarinnar, og Sævar Þór Helgason, gítarleikari, frá ferli Á móti sól, allt frá því hvernig þeir byrjuðu að spila á sveitaböllum, fóru út í það að taka upp plötu, ska-ið, mannabreytingar og tilkomu söngvarans frá Borgarfirði eystri sem átti eftir að hafa mikil áhrif á sveitina.

Þeir segja einnig frá því þegar Spenntur sló í gegn á einni nóttu, dýrustu plötu Íslandssögunnar, tími Magna í Rockstar Supernova og ævintýrinu sem fylgdi í kjölfarið. Þeir segja frá stöðunni í dag, vinahópnum sem skiptir þá mestu máli, afmælistónleikunum og þeirri staðreynd að þeir eru enn á toppnum eftir 30 ár í bransanum.

Umsjón: Vignir Egill Vigfússon