Hvað ertu að lesa?

← Hvað ertu að lesa?16 Jun · 22 min

Þýddar bækur frá A til Ö

Þýddar bækur frá A til Ö16 Jun22 min

Í dag fræðumst við um ferlið á bak við þýddar bækur. Allt frá því að finna spennandi bækur á bókamessum, yfir í að þýða þær á íslensku og svo að sjálfsögðu að lesa þær!

Við heyrum í hjónunum Ása og Elínu sem eru útgefendur og þýðendur hjá útgáfunni Drápu. Þau segja frá bókum eins og Fótboltistunum, Ísadóru Nótt og Handbók fyrir ofurhetjur. Auk þess uppljóstra þau hvaða bækur eru væntanlegar síðar á árinu.

Svo spyrjum við Jón Stefán Kristjánsson út í þýðingar hans á Undrarútunni og fleiri barnabókum og teiknimyndum.

Að lokum lýsir bókaormurinn Ylfa Dögg bókaflokknum Vinkonur og tekur þátt í leiknum Botnaðu bókatitilinn.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.