Skattaspjallið

← Skattaspjallið20 Sept · 22 min

#34 - Hvað borgar þú í skatta?

#34 - Hvað borgar þú í skatta?20 Sept22 min

Það er þekkt spakmæli að ekkert er víst nema skatturinn og dauðinn. Allir borga skatta með einum eða öðrum hætti en veit fólk almennt hvað það borgar í skatta? Nú hefur Viðskiptaráð smíðað gagnvirka skattareiknivél til að varpa ljósi á hversu mikið einstaklingar borga í skatt. Nú geta skattgreiðendur slegið inn eigin forsendur og séð hvað þeir greiða í skatta á mánuði. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, kom í þáttinn að þessu sinni og benti á að heildarskattbyrði einstaklinga er umtalsvert meiri en ætla mætti út frá þeim sköttum sem koma fram á launaseðlinum einum. Heildarskattbyrðin ræðst af tekjum, neyslumynstri og öðrum aðstæðum hvers og eins. Með reiknivélinni er núna hægt að leggja mat á skattbyrði miðað við eigin forsendur og fá þannig heildstæðari mynd af því hversu stór hluti tekna rennur til hins opinbera í formi skatta. Hugsanlega bregður mörgum í brún þegar endanleg tala birtist!Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠styrkja samtökin hérna⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠upplysingar@skattgreidendur.is